Fréttir
04:4004.09 2012Annað Hörður Snævar Jónsson | hoddi@433.is | Twitter:@hoddi23Eiður Smári á leið til Bandaríkjanna
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, er á leið til Bandaríkjana þar sem hann mun skoða aðstæður hjá Seattle Sounders FC í MLS deildinni. Þetta staðfesti hann í samtali við 433.is.
Eiður flýgur út síðdegis til Seattle þar sem hann mun æfa næstu daga áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.
Hann er samningslaus eftir að hann rifti samningi sínum við AEK Aþenu í sumar en hann hafði verið þar í eitt ár.
,,Ég er bara að fara að skoða aðstæður, ég æfi þarna í nokkra daga og sé hvernig mér lýst á þetta allt," sagði Eiður þegar 433.is náði á hann í dag
Eiður hefur fengið fjölmörg tilboð í sumar en Seattle hefur haft áhuga um nokkurt skeið.
,,Þetta er búið að vera í gangi í smá tíma, ég ákvað að skella mér á þetta. Ég er ekki búinn að lofa neinu áður en ég kem þangað, ég fer bara og hitti fólk hjá klúbbnum."
MLS deildin hefur verið í sókn síðustu ár með komu margra heimsfrægra leikmanna.
,,Ég hef ekki hugmynd um hversu sterk MLS deildin er, ég hef ekki fylgst það mikið með henni. Hún hefur samt verið að sækja í sig veðrið og stórir leikmenn eins og David Beckham, Thiery Henry, Rafael Marquez og Robbie Keane hafa komið þangað. Deildin er í sókn en það er ekkert öruggt um að ég muni spila þarna."
,,Ég ákvað að taka þessu boði félagsins um að koma, þeir vilja kynna klúbbinn fyrir mér. Þeir vilja líka sjá hvort að löppin á mér sé í lagi. Við ákváðum að ræða samning ekkert, ég er bókaður aftur til Íslands eftir helgi en ég sé bara til hvernig hlutirnir þróast."
Eiður sem er 34 ára gamall hefur átt afar farsælan feril en hann hefur spilað með PSV, Bolton, Chelsea, Barcelona, Mónakó, Stoke, Tottenham, Fulham, AEK Aþenu, KR og Val.
11:4922.05 2013 Ísland
Umfjöllun: Áfram heldur sigurganga Blikastúlkna
Breiðablik er enn með fullt hús stiga eftir góðan sigur gegn Selfyssingum 4-1. Aðstæöur voru eins og…
10:2222.05 2013 Ísland
Gunnar Rafn: Sóttum mikið og fengum fullt af færum
Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap liðsins gegn Breiðabliki í…
10:2022.05 2013 Ísland
Lára Kristín: Leikur sem við áttum að taka
Lára Kristín Pedersen var að vonum svekkt eftir 4-1 tap Aftureldingar gegn FH í Pepsi deild kvenna…
10:1722.05 2013 Ísland
Hlynur Svan: Rosalega flottur leikur
Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, var að vonum ánægður með 4-1 sigur sinna stúlkna gegn Selfossi…
10:0022.05 2013 Þýskaland
Myndband: Dómaramistök skiluðu sér í ótrúlegu marki
Hrikalega slæm dómaramistök skiluðu sér í ansi fyndnu marki í áhugamannaleik í Þýskalandi síðasta föstudag.
09:5822.05 2013 Ísland
Guðrún Jóna hæstánægð með sínar stelpur í FH
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, þjálfari FH, var að vonum ánægð með 4-1 sigur FH gegn Aftureldingu í Pepsi…
09:5422.05 2013 Ísland
Úrslitin úr fjórðu deildinni í kvöld
Fimm leikir fóru fram í fjórðu deild karla í kvöld en leikið var í A, B og…
09:3022.05 2013 England
Rodgers sannfærður um að Suarez verður áfram hjá Liverpool
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er enn sannfærður um að Luis Suarez verði áfram leikmaður liðsins á næsta…
09:0822.05 2013 Ísland
Breiðablik og Stjarnan með fullt hús - FH vann Aftureldingu
Breiðablik og Stjarnan eru enn með fullt hús stiga í Pepsi deild kvenna eftir góða sigra í…
08:3022.05 2013 England
Clichy skilur ekki hvers vegna Mancini var rekinn
Gael Clichy, varnarmaður Manchester City, viðurkennir að það hafi komið sér í opna skjöldu þegar knattspyrnustjórinn Roberto…
08:0022.05 2013 England
West Ham hefur áhuga á Ambrosini
Umboðsmaður Massimo Ambrosini hefur greint frá því að West Ham hafi gert tilboð í þennan miðjumann AC…
07:5022.05 2013 Ísland
Jafnt hjá Þór/KA og Val - ÍBV vann Þrótt
Tveimur leikjum var rétt í þessu að ljúka í Pepsi deild kvenna. Þór/KA og Valur gerðu 2-2…
07:3422.05 2013 Spánn
Malaga staðfestir að Pellegrini hættir
Malaga hefur staðfest að þjálfarinn Manuel Pellegrini muni yfirgefa félagið eftir þetta tímabil. Líklegast er að Pellegrini…
07:0022.05 2013 Þýskaland
Klopp: Lewandowski verður áfram hjá Dortmund
Robert Lewandowski, framherji Borussia Dortmund, mun ekki yfirgefa félagið samkvæmt þjálfaranum Jurgen Klopp. Pólski landsliðsmaðurinn hefur verið…
06:3022.05 2013 Frakkland
Ibrahimovic velur Ancelotti fram yfir Mourinho
Zlatan Ibrahimovic, framherji Paris Saint-Germain, hefur miklar mætur á þjálfaranum Carlo Ancelotti. Segir hann að hann myndi…
06:0022.05 2013 Evrópa
Giroud: Verðum að gera betur í Meistaradeildinni
Olivier Giroud, framherji Arsenal, segir að liðið þurfi að bæta sig í Meistaradeildinni eftir að hafa tryggt…
05:3022.05 2013 England
Bale gefur í skyn að hann verði áfram hjá Tottenham
Gareth Bale hefur gefið í skyn að hann verði áfram hjá Tottenham í allavega eitt ár í…
05:0022.05 2013 Spánn
Pellegrini staðfestir að hann yfirgefur Malaga
Manuel Pellegrini hefur staðfest að hann muni yfirgefa Malaga eftir tímabilið, en ansi líklegt er að hann…
04:4422.05 2013 England
Petrov ráðinn þjálfari hjá Aston Villa
Stiliyan Petrov, fyrrum fyrirliði Aston Villa, hefur verið ráðinn í þjálfarastarf hjá félaginu. Búlgarinn ákvað að leggja…
04:4122.05 2013 England
Tony Pulis svekktur að vera hættur hjá Stoke
Tony Pulis viðurkennir að hann sé vonsvikinn að hafa verið rekinn frá Stoke City. Að vísu má…

.png)